Þetta er óformlegt samansafn upplýsinga um risaeðlur og önnur dýr miðlífsaldar (e. Mesozoic Era) sem og önnur dýr sem þróuðust fyrir og eftir tíma risaeðlanna. Upprunalegur tilgangur samansafnsins var að halda utan um þekkingu og upplýsingar sem ég þurfti reglulega að rifja upp. 

Vefsvæðið er hægt og bítandi í vinnslu og færslur bætast við eftir því sem tími og áhugi leyfa.

Textabrotin verða uppfærð af og til, eftir því sem tími gefst og ég læri meira. Meira um mig (eiganda síðunnar) má sjá undir „Hafðu samband“.