Latneska heitið Velociraptor merkir „snarræningi“ enda voru eðlurnar rándýr og snarar í snúningum. Þær voru á stærð við úlfa og veiddu líklega í hópum svipað og úlfar og ljón nútímans. Snareðlur voru fiðraðar og líktust fuglum fremur en eðlum í útliti, en höfðu 8 cm langa kló á annarri tá hvors fótar sem þær gátu notað til að særa fórnarlamb sitt holundarsári.
Hvenær uppi: Síð-krít, fyrir 75-71 millj. ára
Lengd: 150-200 cm
Hæð: 50 cm
Þyngd: 15-45 kg
Mataræði: Kjötæta, fæðan samanstóð líklega mikið af smáum grasbítseðlum.
Fundarstaðir: Mongólía, Kína
Áhugavert: Vísindamenn telja að snareðlur hafi getað náð allt að því 60 km hraða á klukkustund á stuttum sprettum. Snareðlur eru náskyldar klóeðlum (deinonychus) sem voru uppi fyrir um 118-115 m. ára, snemma á Krítartímanum, á því svæði sem nú er Norður-Ameríka. Klóeðlur voru líka fiðraðar og með risakló á hvorum fæti. Bæði snareðlur og klóeðlur höfðu beinmyndaða sinastyrkingu í halanum sem gerði þeim kleift að halda jafnvægi á öðrum fæti meðan þær ristu bráðina á hol með klónni á hinum fætinum.
Í Jurassic Park-kvikmyndunum eru snareðlurnar mun stærri en þær voru í raun og veru, frekar á stærð við frænkur sínar klóeðlurnar.

Heimildir og ítarefni:
Hvað át snareðla? (Vísindavefurinn)
Hvernig leit snareðla út og hvenær var hún uppi? (Vísindavefurinn)
Velociraptor á Britannica
Um snareðlur í Jurassic Park-myndunum (Jurassic Park Wiki | Fandom)