Ég heiti Gréta Hauksdóttir og hugsaði þetta vefsvæði sem nokkurs konar safn upplýsinga sem ég hef og mun viða að mér. Þessu samansafni var upphaflega ætlað að auðvelda mér uppflettingar á því sem sonur minn, þá á aldrinum 4-8 ára, bað mig að staðfesta varðandi hverja eðlu eða hvert fornsögulegt dýr sem hann hafði kynnt sér eða lesið um. Svo vatt þetta aðeins upp á sig en efninu er viðhaldið mest eftir því sem tími (minn) og áhugi (líka minn) leyfa.

Menntun mín kemur að mestu úr sjónlistum & hönnun, tungumálum og bókmenntum en ekki fornleifa- eða líffræði, svo ég biðst fyrirfram afsökunar á öllum villum. Heimildum mínum ber ekki alltaf saman en ég reyni að tína til það sem virðist réttast hverju sinni og texti þessa vefsvæðis er fyrst og fremst hugsaður sem léttmeti og mögulega þrep inn í dýpri þekkingarleit fólks. Einhverjar upplýsingar um heimildir mínar má finna neðst á þessari síðu og svo oft við hvert dýr fyrir sig. En endilega látið mig vita ef þið rekist á eitthvað sem mætti laga.

[Uppfært 4. júlí 2025]

Go back

Your message has been sent

Warning
Warning
Warning

Warning.

Heimildir (ekki tæmandi listi):

  • Örnólfur Thorlacius, Náttúrufræðingurinn, 77. árg, hefti 1-2, 2008.
  • Á risaeðlusafninu (2011). dr. Jen Green, ísl. þýðing: Hálfdan Ómar Hálfdanarson, fornlífsfræðingur. Útgefandi Unga ástin mín ehf. Heiti á frummáli: The Dinosaur Museum (2008).
  • Alfræðiritið Britannica – vefútgáfan.

Áhugavert og tengt efni: