Glósur og punktar um ýmis fornsöguleg dýr.

Category kjötæta

Tröllgramur

Tröllgramur (lat. giganotosaurus), líka nefnd jötuneðla, var svipaður að hæð og grameðla (tyrannosaurus rex) en þyngri, lengri og hraðskreiðari en grameðlan. Haus eðlunnar var á stærð við baðkar en þrátt fyrir það stóð grameðlan henni framar hvað varðar vitsmuni að… Continue Reading →

Drísileðla

Drísileðlan (fræðih. Coelophysis) var grönn og lipur eðla með grannt og langt höfuð, margar og hvassar tennur og hlutfallslega stór augu. Hún gekk eða hljóp um á tveimur fótum og hafði 4 fingur á hvorri loppu/krumlu, þó virðist vera sem aðeins 3… Continue Reading →

Títanslanga

Títanslangan var kyrkislanga sem kom fram á sjónarsviðið um 5 milljónum ára eftir aldauða risaeðlanna í hitabeltisfrumskógum Suður-Ameríku. Þrátt fyrir að hafa svipaða líkamsbyggð og bóa-kyrkislöngur hefur Títanslangan líklega veitt á sama hátt og anakondan; legið í launsátri, gert skyndiárás… Continue Reading →

Kimmereðla

Kimmerosaurus var sjávarskriðdýr sem lifði á því svæði sem Bretlandseyjar eru nú. Eins og aðrar svaneðlur var hún straumlínulaga kjötæta. Hvenær uppi: á síð-júra; á Kimmeridgean-tímabilinu fyrir um 154-149 milljónum ára síðan. Lengd: 6 metrar (áætlað út frá takmörkuðum upplýsingum)  Þyngd:… Continue Reading →

Fiskeðlur

Fiskeðlur (ichthyosaurs) réðu lögum og lofum í höfum snemma á Tríastímanum, fyrir um 251 milljón ára (um 20 milljónum ára á undan risaeðlunum). Útlit þeirra þróaðist frá því að líkjast eðlu með ugga í það að líkjast (kúlulaga) fiskum frekar…. Continue Reading →

Blakeðla

Blakeðla (fræðih. Dimorphodon) var uppi snemma á Júratímanum. Hún hafði leðurkennda vængi og var í raun fljúgandi skriðdýr sem hagaði sér nokkuð eins og sjófugl. Hún tilheyrir Ptetosauria-flokknum, sem voru hinar eiginlegu flugeðlur (en ekki fuglakyns). Stærð: 25 sm (vænghaf)… Continue Reading →

Snákeðla

Flugeðlan Quetzalcoatlus, eða snákeðla, (fræðiheiti Quetzalcoatlus northropi) dregur nafn sitt af hinum fiðraða snákaguði Quetzalcoatl frá Mið-Ameríku. Hún kom fram seint á Krítartímanum og er stærsta flugdýr sem vitað er um. Nýjustu rannsóknir áætla er að vænghaf hennar hafi verið 11-12 m…. Continue Reading →

Risahvalur – Basilosaurus

Basilosaurus (eða konungseðla/eðlukonungur) er tegund stórra fornhvala frá því seint á Eosentímanum, fyrir um það bil 55-33,9 milljónum ára síðan. Tegundin hefur líkast til náð um 21 m lengd, með 1,5 m hauskúpu.   Annar risahvalur hefur fræðiheitið Livyatan melvillei og kom… Continue Reading →

Gáseðla

Hálsstuttu svaneðlurnar Kronosaurus hafa oft/stundum verið nefndar Gáseðlur á íslensku. Þær náðu 9-12 m lengd, voru gríðarleg rándýr og veiddu risasmokkfiska, ammoníta og mögulega fiskeðlur sér til matar. Meira hér:  Australian Museum Kronosaurus á vef New Dinosaur (með myndum) Prehistoric… Continue Reading →

Svaneðlur

Svaneðlur skiptast í hálslangar eðlur (plesiosauroids) og hálsstuttar (pliosaurs eða pliosauroids). Á íslenska svæði Wikipediu stendur: „Svaneðlur (fræðiheiti Plesiosauria) voru stór, höfuðsmátt sjávarskriðdýr með fjögur bægsli. Steingervingasafnarinn Mary Anning (1799–1847) fann fyrsta steingerving svaneðlu. Árið 1982 fannst mjög stór svaneðla í fylkinu Nuevo León í Mexíkó, um 15 m… Continue Reading →

« Older posts

© 2026 Risaeðlur og fornir félagar — Powered by WordPress

Theme by Anders NorenUp ↑